Tobba

Gulrætur!!!

20.01.2008 21:40:38 / tobba

Nýtt Blogg

Ég er komin með nýtt blogg yay=)

 

http://crazy-carrot.blogspot.com/

 

Kv Tobba


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 14:16:12 / tobba

Sverge

Nú er ég í Velling, en ég og mamma keyrðum í gær frá Ås og til Róberts frænda og Sofie í Velling sem er rétt fyrir utan Malmö. Við gistum hér í nótt og eigum svo flug til Íslands í kvöld þannig að við tökum bara lest út á flugvöll á eftir. Svo fer ég austur á morgun þannig allir verða að bíða þar til ég kem þaðan til að hitta mig:$

Kv. Tobba 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 16:48:35 / tobba

...

Fyrst og fremst “Til hamingju með afmælið Ásrún!”

"Hurra for deg som fyller ditt år!
Ja, deg vil vi gratulere!
Alle i ring omkring deg vi står,
og se nå vil vi marsjere.
Bukke, nikke, neie, snu oss omkring,
danse for deg med hopp og sprett og spring.
Ønsker deg av hjertet alle gode ting,
og si meg så hva vil du mere.

Høyt våre flagg vi svinger, hurra!
Ja, nå vil vi riktig feste!
Dagen er er din, og dagen er bra,
men du er den aller beste!
Se deg om i ringen, hvem du vil ha!
Dans så en dans med den du helst vil ha.
Vi vil alle sammen svinge oss så glad
for en av oss skal bli den neste."

Ég er svo stolt að vera loksins búin að læra afmælissönginn;) og Ásrún þú færð ammælisgjöfina þegar ég kem:haha:

Í gær var ég svo í Osló með henni Gunnu, við fórum á skriðdýrasafnið og mig langaði svo að taka eina slöngu sem ég hélt á með mér heim, það eru ekki margir sem skilja þennan áhuga minn á slöngum en mér finnst þær svo flottar, svo sáum við líka eðlur, krókódíl, köngulær og spðrðdreka, mikið gaman. Svo fórum við niður á Aker Brygge og kíktum í skemmtilegar designe búðir og svo fórum við á Kínastað og fengum okkur að borða og svo var lestin tekin heim klukkan 9.

Svo hékk ég bara í vinnunni í dag, mikið að láta sér leiðast því við unnum svo hratt, svo kemur mamma loksins heim í kvöld og ég þarf að renna inn í Osló að sækja hana.

Svo er það bara Ísland 2. ágúst hurra!!!

Kv. Tobba


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 12:24:57 / tobba

Halló

 Já það er mikið búið að gerast í sumar og lítið búið að blogga.

Ég útskrifaðist með stúdentspróf 22. júní, bless bless framhaldsskóli.

Stuttu eftir það fékk ég vinnu á elliheimili, góður staður til að æfa norskuna með því að tala við gamla fólkið og vel launað. Svo fór ég í karateæfingabúðir í Tønsberg hjá geggjuðum þjálfurum, 3 frá Japan(Kawasoe, Ushi og Lim, Ushi er alveg eins og gamli karlinn/þjálfarinn í Karat Kid)1 frá Englandi(Taylor snilldar náungi sagði að gott væri að æfa ballet með karate) og einum norskum(Weberg) sem er þjálfarinn minn, en ég var að komast að því að hann var fyrsti skandinavíubúinn (vá skemmtilegt orð) til að fá svart belti og æfði með Bruce Lee. Flottur þjálfari eða hvað, allavega í æfingabúðunum fékk ég fjólublátt belti 4. kyu (hoppaði yfir blátt) og nú eru bara 3 brún eftir í svart.

Svo eignaðist ég lítin bróður stórt JEY og hann verður skírður þegar ég verð heima stærra JEY.

Það er búið að vera gestagangur síðan í miðjum júní en nú er allt að tæmast svo ég verð bara að vera ein heima, mamma er að fara í göngu en ég kemst ekki með þarf víst að vinna. Svo vorum við í Norrefjell um daginn en mamma leigði þar hytte því það var svo mikið fólk að koma, hún átti fertugs afmæli. Þessa helgi er ég búin að vera skemmta mér með Áróru og Áslaugu Dóru frænkum mínum sem eru í heimsókn, við fórum í Tusenfryd garðinn á laugardaginn og ég náði að draga þær í næstum öll tækin en þær fóru í alla rússíbanana ( vá annað skemmtilegt orð) og á föstudagskvöldinu leiddist mér og Áróru svo við ákváðum að fara inn í Osló og kaupa Harry Potter og vá þarna voru Harry Potter nördar Noregs saman komnir í skikkjum með gleraugu og ör á enninu, þetta var gaman, komum meira að segja í fréttunum.

Nú lofa ég að vera aðeins duglegri að láta í mér heyra.

 

Kv. Tobba

 

P.s. Ásrún ótrúlegt en satt ég er ekki brunnin heldur komin með smá lit...


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 18:27:50 / tobba

Sumar og sól

Nú er sumarið sko aldeilis komið, rigningin búin og heiður og blár himinn:haha:

Í dag var 25 stiga hiti, ég vaknaði milli 10 og 11 og fór út í sólbað með fólkinu, svo þegar líða fór á daginn var ákveðið að skella sér bara á ströndina og leyfa stubbunum að sulla aðeins. Það vildi svo heppilega til að ég er að fara í enskuprófið mitt á morgun svo bækurnar hafa elt mig í allan dag. Hitinn er samt bara rétt að byrja það spáir enn meiri hita út vikuna, prófið á morgun verður því hræðilegt því það verður steikjandi hiti inn í stofu og prófið tekur 5 klukkutíma, en svo er næsta próf ekki fyrr en 14. júní svo það er hægt að flatmaga í sólinni þangað til8) sem þýðir að ekki muni heyrast mikið í mér. Ég vona samt að ég brenni ekki of, það er aðeins farið að byrja...:(


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 15:17:09 / tobba

Smurftest

Ég er klaufastrumpur:haha:

You are Clumsy Smurf. You are a kind and loveable person. It doesn't take much to make you happy. You have a gentle way about you. Your friends are important to you and you enjoy helping them out. Some may say you can be a bit clueless, but you understand more than people think. Your positive outlook on life is contagious. You are a sweet and caring individual that deserves to be loved!

Allir taka strumpaprófið og láta mig svo vita hvaða strumpur þið eruð, minn passar vel við mig:D

http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm

Kv. Tobba

P.s. Öll norskuprófin búin, nú er bara lokapróf í ensku og munnlegu prófin eftir:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 11:04:40 / tobba

Full pakke

Nú er sko komin tími til að skrifa eitthvað hérna, það er alveg ótrúlegt hvað dagarnir fljúga án þess að maður taki eftir því . Mér finnst svo stutt síðan ég var á Íslandi en það eru víst komnar tvær vikur.

Það er best að byrja bara á byrjunninni.

Eins og margir eflaust vita var ég þarna a eyjunni í ca. viku tíma, þa var æðislegt, ég náði að hitta flest alla vinina og flakka um milli Borganess, Akraness og Reykjavíkur, fór m.a. í fermingu hjá henni Áslaugu Dóru systurdóttur Begga og gisti svo út um allar trissur. Svo var haldið partý hjá Ásrúnu og ég hjálpaði líka að “læra” fyrir líffræðipróf, svo gisti ég hjá Dagmari og kíkti svo aðeins í gamla skólann, fólkið þar var víst mjög hissa á að sjá mig.

Svo var ferðinni aftur heitið heim til Noregs, þar beið mín skóli og fleiri próf, en þetta fer allt að skána núna, á morgun fer ég í efnfr. próf og svo er seinasti skóladagurinn á fimmtudaginn, þá byrja sko lokaprófin, sem er sorglegt þar sem allir sem allir mínir vinir þarna á Íslandi eru búin í prófum. En hvað um það, svo byrja munnlegu prófin 14. júní og þá vona ég að ég sleppi vel, þau taka 30. mín og þú færð 3 málefni að tala um í hverju fagi, ég vona að ég fái gamal norsk í norsk, það er auðvelt. “Gerði hann svá, gekk til konungs, þá er hann sat yfir matborði, ok er hann kom inn, heilsaði hann konungi.” Þetta er bara djók fyrir íslendinga og enginn vandi að skilja og hvað þá að þýða. Reyndar er ég búin að fá nokkur comment um fallbeygingar í norskutímum, ég veit ekki hvað ég hef oft þurft að segja ”Hestur, um hest, frá hesti, til hests” og alltaf rugla þau þessu, svo kemur Jónatan alltaf með sín skemmtilegu comment ”-ur, -ur, -UR, -UR” ég held hann hafi eitthvað á móti íslenskum nöfnum.

 

Svo er ég í augnablikinu að verða geðveik á pizzu auglýsingu, maður fær hana svo á heilann... og dansinn líka:whut:

Sko þetta er þreytandi til lengdar og svo þurfa þeir alltaf að vera að spila lagið í útvarpinu.

 

Svo var náttúrulega 17. maí fyrir nokkrum dögum, en það er þjóðhátíðardagur norðmanna, aldrei á æfinni höfum við og mamma séð svona stórar skrúðgöngur, né jafn mikið af fólki klætt í þjóðbúningana, það voru svo margir í þeim og þeir voru svo flottir, en ég verð bara að setja inn myndir frá því það er ekkert auðvelt að lýsa þessu.

Annars er ekki mikið að ske, mamma er í Þýskalandi, hún fór í morgun svo ég og Svavar erum bara ein heima, en það er svosm nóg að gera svo okkur leiðist ekki.

Seinasta laugardag var okkur reyndar boðið í mat í Ski hjá Íslendingum Lúna og Tótu en þau bjuggu á Neskaupsstað þegar við bjuggum þar svo mamma vissi hverjir þetta voru, þau eiga stelpu sem heitir Unnur og er 16 næstum 17 ára en hún er með mér í skólanum en er á 1 ári, hún er samt búin að búa hér svo lengi að hún er eiginlega norsk, allavega komu orð og setningar sem hún vissi ekki hvernig átti að segja á íslensku, en það var æðislegt að tala við hana, það var pínu Þórdís í henni.

Þá held ég að allt sé upp talið.

Kv. Tobba.

P.s. ég set fleirri myndir inn á myndasíðuna fljótlega, frá 17. maí o.fl.


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 13:31:35 / tobba

Próf

Þá eru heilsdagsprófin byrjuð, tvö búin af allavega fimm, kanskje fleiri. Heilsdagspróf eru 5 klukkutíma próf, sem getur verið svakalegt, en það er hægt að standa upp og labba aðeins tvisvar í fylgd með kennara. Ég er búin með norsku (meðan bekkurinn tók nynorsk), en á samt eftir að taka annað á fagdag,og svo er bóklega íþróttaprófið búið. Á mánudaginn er það svo efnafræði þar sem ég má hafa með mér 20 blaðsíður af glósum (sem þýðir svakalega erfitt próf) svo enska eftir viku og svo líffræði, svo er það bara skóli framm að lokaprófum.

Ferðalagið til Dale var mjög fínt, sá bær minnti mig aðeins á austfirði og bara ísland, þoka rigning snjókoma og sól. Allur pakkinn. Þetta var að mestu bara letilíf þarna en samt var aðeins skoðað sig um, við tókum meira að seigja mynd af styttunni af Ingólfi Arnarsyni, en hún var samt alveg eins og styttan á Arnarhóli. Sunnefjørd, fjörðurinn sem Dale er í er nefnilega þar sem Ingólfur átti heima og var settur í útlegð frá Noregi. Alltaf gaman að skoða sögustaði.

Ég fann það samt út á þessu ferðalagi að það er ekki hægt að kvarta yfir vegum heima á Íslandi, samanlagt eru 550 km til Dale frá Ås en það tók okkur 10 tíma að komast heim, með einu matarstoppi, og svo bætti það heldur ekki að það var farið að snjóa svo fjallvegirnir voru ekki auðveldir.

Mesta snildin var samt þegar við keyrðum með þjóðvegi 5 þar til hann endaði út í sjó, en þar var bátur sem fór með bíla á milli, báturinn var hluti af þjóðveginum, það var engin önnur leið þarna..

 

Annars er ekki mikið að segja frá ég sit bara hér inni og læri fyrir efnafræðipróf meðan það er 18 stiga hiti og sól úti, ekki skemmtilegasta veðrið að læra íL

 

Kv. Tobba


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 20:44:27 / tobba

Er á lífi

Já ég er enn á lífi, ég veit að það hefur ekki veri mikið líf í mér undanfarið en svona er þetta þegar maður er að undibúa sig fyrir lokaprófin, kennararnir eru gjörsamlega að gera útaf við okkur í heimanámi og hlutum sem þurfa að klárast fyrir próf.

Fyrir tveim vikum + einum degi varð ég 19 ára, ekki það að það sé merkilegur aldur, þetta er frekar merki um að sýna manni að aldurinn flýgur áfram næst 20 ára og þá hálfnuð í 40 ára. Best að hætta að hugsa um þetta.

Annars gengur lifið bara sinn vanagang, ég fór með fyrirlestur um Berlínarlokuninna um daginn, og auðvitað hljómar maður alltaf eins og 10 ára krakki vegna orðaskorts, en ég kvarta ekki því allir skilduu mig, þó margir í bekknum segji að ég tali með dönskum hreim (við hverju býst maður eftir að læra dönsku í 7 ár).

Seinasta mánugag var svo skellt sér í cirkus sem kom í bæinn, og ég verð að viurkenna að það var ansi gaman, þarna var einhver finnskur trúður og liðugir rússar, auk pólverja búlgara og einhverri stelpu frá M eitthvað. Loftfimleikarnir tóku mömmu á taugum því fólkið hafði engin net né öryggislínur, svo mömmu var ekkert sama, svovorum við svo heppin að vera alveg við hringinn svo að við sáum fílin, kameldýrin og hestana nálægt, Benni sonur Lilju skellti sér meira að segja á fílsbak. (Myndir koma inn síðar).

Svo seinasta miðvikudag fórum við í sundferð í íþróttum til Askim, sem er í ca 30km fjarlægð frá Ås. Ég er næst best í mínum bekk í sundi, sú sem er betri en ég hefur æft sund síðan í öðrum bekk, allir hinir voru svona la la og ætluðu varla að trúa því að það væri skilda að vera í sundi frá 1-10 bekkjar, hvað þá að maður útskrifaðist ekki ú grunnskóla án þess. Engin furða þó svona margir norðmenn drukkni!

Annars er maður nuna bara komin í páskafrí, við ákváðum að skella okkur til íslenskrar fjölskydu í Dale, en það tekur soldin tíma að komast þangað (ég set kort inn seinna) nú sit ég í gistiheimili í Lærdal en við löguðum af stað frá Åsi um hálf 1 í dal og vorum komin um hálf 9 samt var ekki keyrt nema u.þ.b. 350 km, við stoppuðum reyndar einu sinni að borða nesti og einu sinni til að skoða stavkirkju í Gol, enn allt í allt hefur það verið ca. einn og hálfur tími svo keyrslan tók um 6 og hálfan tíma. Enn ein sönnun fyrir að norskir vegir eru hlykkjóttir mamma var alltaf á milli 60-70km hraða.

Enn gistiheimilið er mjög fínt ég fékk sér herbergi með sjónvarpi, mamma og Svavar og Lilja og Benni hafa ekki eitt slíkt og ég er meira að segja með um 15 stöðvar, Benni var ekki sáttur.

Það er kominn sumartími aftur hér úti, svo ég er aftur 2 tímum á undan þannig að ég er farinn að sofa, þið getið sjálf reiknað hvað klukkan er.

 

Kv Tobba

 

P.s. hér er mynd af stavkirkjunni

http://torontohomelistings.com/earth/webfotoalbum/Leardal_14_juli/images/IMG_3841-1.jpg

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 23:24:59 / tobba

Historieprojekt

I dag fik jeg et projekt i historie, jeg og min gruppe skal skrive om Tyskland, jeg ha Berlinblokaden som er veldig fint, Menel skal være med meg a skrive om blokaden, men Sarah og Erik skal skrive om Berlinmuren. Svo skal visnakke om det fær klassen.

Så fik jeg også et projekt i norsk, jeg må lese bøk som hedder Herman og levere in et sammedrag om bøken.

Så på tirsdag er også presentere om som stoffer og kjemireaksjon, og jeg er i gruppe med Eyvind, men han snakker ikke meget engelsk så det kan bli lidt vanskelig.

Jæja nú er ég búin að sanna að ég kann smá norsku.

Kv. Tobba


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 15:48:14 / tobba

Leikhúsferð

Langt síðan maður hefur skrifað hér, sem þýðir að það hefur ekki mikið skeð hjá mér.

Seinasta föstudag fór ég með nokkrum bekkjarfélögum í leikhús að sjá Chateau Neuf með Team Eckbo, þetta var snilldar leikrit, minnti mig svolítið á Monty Phyton, því þeir voru með svona allskonar brandara og léku líka út í sal og ótrúlegt enn satt ég skildi allt. Hér er linkur á þá þegar þér gerðu grín af dönsku á NRK1.

Við byrjuðum á að taka lest inn í Osló og svo T-banen til Majorstuen, nú held ég að ég sé alveg búin að læra á kerfið í Osló, svo eftir leikritið fórum við á Pepper's pizza að borða og röltum svo um. Svo var lestin tekin heim og þegar ég kom heim fóru mamma og Lilja að djóka með eitthvað djamm, sem væri greinilega leiðinlegt þar sem ég var komin heim um 11.30.

Svo er búið að vera brjálað að gera í skólanum, fullt af verkefnum og nokkur próf, það styttist í heilsdagsprófavikurnar.

Vá ég man ekki neitt meira, voðalega er líf mitt óspennandi í augnablikinu:frown:

Jú svo er ég að koma heim í lok apríl:haha: þá verður stuð, ég ætti að ná ca. viku, en þá verða heilsdagsprófin búin. Svo eru það bara lokaprófin í miðjum maí, og svo klárast skólinn 22. júní, ég veit reyndar ekki hvað við eigum að gera eftir lokaprófin8 og svo er það bara að vinna.

Kv. Tobba


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 15:29:36 / tobba

Háskólar...

Nú er komið að því, allan skóladaginn í gær sátum við og hlustuðum á kynningar á háskólum hér í Noregi og nú er komið að því að velja. Ég eins og flestir vita ætla að reyna að komast inn í líffræði, kannski bioteknologi (man ekki íslenska orðið eins og er) en það er líka svoldið spennandi. Eftir "miklar" pælingar hef ég ákveðið að sækja um í UMB (Universitet for miljø- og biovitenskap) sem er hér í Ås. En svo kannski sækir maður um í Osló. Ef allt bregst er ég farin í herinn;)

Ég komst líka að því í gær að allir strákar í Noregi fá herkvaðningu og eru skildugir til að vera í hernum amk. 19 mánuði frá aldrinum 19 - 44, stelpur fá að velja, örugglega samt ansi gaman að læra að stýra þotu:D

 Seinasta þriðjudagskvöl fórum ég og Tryggvi í að bera undir skíðin okkar, það var nú meiri steypan og ógeðið, fyrir utan að mér leið eins og geðsjúklingi, fyrst var notaður sandpappír undir skíðin, svo set vax nema í miðjunni og svo sett eitthvað klísturgums undir miðjuna á skíðunum. Þetta mundi maður aldrei gera við svigskíðin sín, sá aðili yrði sendur á geðdeild...

Úúú þarf að gera mig klára fyrir karateæfingu

Kv. Tobba



» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 13:57:57 / tobba

!

...Talvan enn biluð...

 

En hvað um það, eins og sumir vita þá skellti ég mér í hyttetur með bekkjarfélögum mínum seinustu helgi. Þvílíkt stuð, við lögðum af stað beint eftir skóla á föstudeginum, mamma var ekkert svakalega sátt því ég gat bara sagt henni nafnið á staðnum en ekki hvar hann var (ekki gleyma því að ég hef aldrei lært landafræði um Noreg og því segja nöfn ekki mikið) en allavega lagt var af stað um 2 leytið og við vorum komin milli 6.30 og 7. Samt bara um 240 km þanngað, en vegir hér í Noregi eru hlykkjóttir svo það var nú eiginlega bara keyrt á ca. 80. Ég veit um fólk sem hefði brjálast. En við skemmtum okkur vel í bílnum, ég lærði nokkur norsk lög og lét stelpurnar hlusta á íslenska tónlist.

Svo í elduðu Monika og Eirin fyrir okkur kvöldmat, og svo var skellt sér í heita pottinn og svo í actionary (á norsku hehe).

 

Svo á laugardeginum var drifið sig á skíði, ég byrjaði að vera í “auðveldu” brekkunni meðan ég var á snjóbrettinu, en ég hefði alveg eins getað verið í stólalyftunni í Bláfjöllum, því þetta var ekkert auðveld brekka að mínu mati, og fallegu marblettirnir á hnjánum staðfesta það.

Svo fór ég og leigði mér skíði, (því mín eru ennþá á Íslandi) og dreif mig svo upp í almennilegu brekkuna, þessa sem var merkt með svörtu (expert) og þetta er skemmtilegasta og erfiðasta brekka sem ég hef á ævinni farið í, stundum horfði maður liggur við beint niður, og svo þurfti maður að passa sig á trjánum. Við vorum þarna átta saman í svakalegri brekku, þetta þarf ég sko að gera aftur. Ég, Monika, Ida, Erik, Knut Magnus og Eyvind vorum á skíðum en Yngve og Jørgen voru á bretti.

Svo var farið aftur upp í skála um fimm leytið en þá voru allir svo þreyttir að enginn nennti að gera neitt, sumir fóru og lögðu sig en við hin lágum í sófunum. Svo loksins klukkan 9 var farið að gera kvöldmat. Jørgen fann svo gesta bók og starði svo lengi á eina síðuna og klóraði sér mikið í hausnum, maður heyrði liggur við brestina í hjólunum, svo kom Monika honum til hjálpar brosti og sagði honum svo að láta mig lesa þetta og þýða, þetta var þá frá einhverjum íslendingu sem meðal annars gerðu grín að norskum heitapottum, það á víst ekki að taka 8 klukkutíma fyrir vatn að hitna.

 

Svo morguninn eftir fór helmingurinn af hópnum aftur á skíði en við hin vorum eftir og þrifum skálann. Svo var bara að drífa sig aftur heim því 4 tíma keyrsla framundann.

 

Annars er ekki mikið búið að vera að gera ég var veik síðasta þriðjudag, og búin að vera að drepast úr hálsbólgu síðan, en búin að fara í skólann alla hina dagana. Svo gleymdi ég að segja það að mér tókst að halda fyrirlestur um Njálssögu á norsku...ekki svo slæmt ha.

 

Svavar á afmæli á morgun og öllum strákunum í bekknum hans er boðið, hvert á ég að flýja núna. Ég verð bara að fá útrás á karateæfingunum og koma þreytt heim og sofa Sensei Kawasoe kemur nebblega um helgina, ÆFINGABÚÐIR JEY.

 

Jæja hef ekkert meira merkilegt að segja.

Kv. Tobba

 

P.s. myndir http://www.picturetrail.com/gallery/view?username=tobbak&x=18&y=12

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 08:23:20 / tobba

Talva enn bilud

Her er eg eins og fyrri daginn i truarfræditima. Talvann min er eins og fyrrir daginn bilud, eda eitthvad, tad sem er ad er ad tad kemur ekkert a desktopinn enn eg get samt med sma krokaledum komist inn a netid og svoleidis, en bara i ca. 5 minutur, ekki snidugt:whut:

Mamma var svo heppin ad finna tilbod i Coop, svo øll familian er nu komin a langerang (gønguskidi) en manni vantar en skidi, eg er enn ad reyna ad redda mer skidum adur en fritluftsdagurinn er enn ta fara allir a skidi.

Svo er eg ad fara i hytte (bustad) um næstu helgi med bekknum, get varla bedid en timinn ma samt ekki fara of hratt tvi eg tarf ad halda fyrirlestur a norsku a føstudaginn8| pinu hrædd.

Kv. Tobba   

P.s. eg for a snjobretti i gær og mamma for tvær ferdir:haha:


 

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 12:47:45 / tobba

Kalt

Talvan mín er víst en biluð:whut: svo ég er í tölvunni hennar mömmu núna.

Fyrst í fréttum er það að ég er að verða en stærri systir:haha: brátt verður einu krílinu fleira fyrir austan.

Annað það er loksins kominn vetur hér úti, Svavar er búin að gera tilraun í að búa til snjóhús en entist ekki lengi, svo fórum við í brekku sem við fundum og ég fór á snjóbretti en Svavar hélt sig við sleðann, svo er bara málið núna að safna sér fyrir almennilegum gönguskíðum. Svo keypti ég mér skauta seinasta laugardag, kostuðu bara 75 norskar krónur:haha: ca. 800 kr íslenskar.

Svo er maður bara fastur í skólanum þessa dagana, alveg brjálað að gera8|

Kv. Tobba

P.s. ég er ekkert alltof góð í að bremsa á snjóbretti:$

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
10. febrúar 2012
Tenglar